Veitingastaðir og reykingar

.....ég veit ekki.......er ég og aðrir sem ekki reykja annars flokks borgarar ?........og eigum við að þegja og "leyfa" reykingamönnum að kæfa okkur fyrir kurteisis sakir ?   ég held ekki að nokkrum manni detti í hug að það sé rétta aðferðin, en þegar veitingamenn setja sig í fórnarlamba stellingar þá eiginlega ofbýður mér, ef þið viljið afsaka orðbragðið.  Ég hef dregið mig mjög mikið út af veitingastöðum eftir að heimurinn og ég uppgötvaði skaðsemi reykinga, og hef þess vegna ekki stundað veitingastaði sem leyfa reykingar og held því auðvitað áfram mér til heilsubótar.

Sumarfrí/vorfrí

Okkur fjölskyldunni tókst að koma með sólina heim frá Barbados og geri aðrir betur !

Mér var ekki farið að lítast á blikuna þegar heima á Íslandi var frost og snjór þá daga sem við leyfðum okkur að bakast í 31 stigs hita og sól alla dagana 13 sem við brugðum okkur í burtu.

 Íslendingunum leið afskaplega vel í heimsókn hjá íbúum þessarar litlu og sólríku eyju sem er með sól og 30 stig alla 360 daga ársins.

Íbúarnir eru jafn margir þarna eins og hér en á miklu minni eyju svo að það eru engin mannlaus hálendi sem maður getur týnt sér á heldur eru alls staðar elskulegir íbúar sem eru boðnir og búnir að hjálpa týndum túristum.

  

 

 


« Fyrri síða

Um bloggið

gustapustnanusdisputantum

Höfundur

Ágústa

sveimhugi með skoðanir á mönnum og málefnum

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • P4150008
  • P4180009
  • P4180013
  • P4180010
  • P4100002

Myndaalbúm

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 305

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband